Pivot
Pivot er fyrirferðalítið en kröftugt tæki sem hægt er að nota með eða án maka á fjölbreyttan hátt. Tækið getur nýst sem fingratitrari til örvunar á snípinn á sama tíma og fingur fara inn í leggöng. Auðvelt er að koma hringnum utan um strap-on eða typpi þar sem hann er teygjanlegur. Hringurinn auðveldar þeim sem eru með typpi að halda stinningu og getur veitt dýpri fullnægingu. Pivot hentar vel fyrir gagnkynja og samkynja pör.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Tækin frá We-Vibe eru hágæða tæki úr vönduðu silíkoni sem er einstaklega mjúkt viðkomu. Hringurinn er teygjanlegur og hefur kröftugan mótor sem skilar djúpum og unaðslegum titring. Hægt er að setja tækið innst á typpið í kynlífi með maka þar sem hinn endinn á tækinu leggst á og örvar snípinn. Hringinn er líka hægt að nota sem egg eða fingratitrara og örva þannig snípinn á sama tíma og fingur fara inn í leggöng. Hentar einnig með dildóum hvort sem er í sjálfsfróun eða með maka.
Hægt er að stjórna tækinu með snjallforriti eða með takka á tækinu sjálfu. Hægt að stjórna kraft- og taktstillingum hvar sem er í heiminum. Þú einfaldlega opnar We-Connect appið í símanum þínum og tengist tækinu. Þannig getur þú búið til þitt eigið titrandi mynstur og komið makanum þínum skemmtilega á óvart.
Hægt er að hlaða niður We-Connect appinu í App Store fyrir Iphone og Google Play fyrir Android.
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í tvær klukkustundir og tekur um 90 mínútur að fullhlaða það. Tækið lætur þig vita þegar að það þarf að hlaða það. Með því fylgir hleðslusnúra sem festist á enda tækisins með segli. Hleðslusnúran er með USB enda sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu. Tækið er hljóðlátt og sturtuhelt en ekki er ráðlagt að setja það á kaf í vatn.
Titringurinn í tækinu er 3 á Blush skalanum 1-5, fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 3,1 x 7,1 cm
- Hleðslutími: 90 mín
- Ending rafhlöðu: 2 klukkustundir
- Stillingar: 10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Hægt að stjórna úr hvaða fjarlægð sem er. (long distance)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is

















