Nova
Nova frá Svakom eru sérhannaðar kúlur til þess að þjálfa grindarbotnsvöðvann. Þrjár kúlur koma saman í pakka og eru misþungar og misstórar. Hægt er að nota kúlurnar t.d við dagleg störf, líkamsrækt eða í sturtu. Kúlurnar eru alveg vatnsheldar og eru úr hágæða silíkoni. Þeim er stungið inn í leggöng og hægt er að nota vatnssleipiefni ef þörf þykir.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Leiðbeiningar:
- Stig eitt: Einföld kúla. Þyngd: 49gr. Stærð: 135 x 36mm.
Léttasta kúlan er notuð til að venja líkamann við. Mikilvægt er að nota kúluna 4-7 sinnum í viku í 30 mín í senn. Eftir 30 daga má skipta yfir í næstu kúlu.
- Stig tvö: Tvöföld kúla. Þyngd: 75gr. Stærð: 170x32mm.
Miðju kúlan er notuð eftir að líkaminn hefur vanist minnstu kúlunni. Kúlan er tvöföld og tekur því á stærri hluta vöðvans. Mikilvægt er að nota kúluna 4-7 sinnum í viku í 30 mín í senn. Eftir 30 daga má skipta yfir í næstu kúlu.
- Stig þrjú: Tvöföld kúla. Þyngd 95gr. Stærð. 162x28mm.
Þyngsta kúlan er tvöföld og þyngst en þó minni en miðju kúlan. Hún er notuð eftir að líkaminn hefur vanist miðju kúlunni og er tilbúinn í þyngstu kúluna. Mikilvægt er að nota kúluna 4-7 sinnum í viku í 30 mín í senn. Eftir 30 daga er nóg að viðhalda og nota kúluna 1-5 sinnum í viku eða eftir þörfum.
Talið er að einn af hverjum 3-4 einstaklingum með leggöng þjáist af þvagleka af einhverju tagi yfir lífsleiðina.
Mikilvægt er að þjálfa grindarbotninn. Samdráttur í grindarbotnsvöðvum styður við líffæri í grindarholinu en má þar telja leg, þvagblöðru, þvagrás og endaþarm. Til að þjálfa grindarbotnsvöðvann þarf að vera fullviss um að verið sé í raun að spenna rétta vöðva. Margir eiga erfitt með að tileinka sér rétta spennu og rugla oft spennu í grindarbotni við spennu í kvið-og rassvöðvum. Með aðstoð grindarbotnskúlana er auðvelt að finna réttu leiðina til að þjálfa vöðvann. Aukinn styrkur í grindarbotnsvöðvanum getur komið í veg fyrir þvagleka, legsig og fleiri fylgikvilla. Einnig getur það haft mjög góð áhrif á kynlíf og kynhvöt.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: Léttasta kúlan: 36x135mm - Miðju kúlan: 32x170mm - þyngsta kúlan: 28x162mm
- Þyngd: Léttasta kúlan: 49 gr - Miðju kúlan: 75gr - þyngsta kúlan: 95gr
- Rafhlaða: Án rafhlöðu
- Vatnshelt: Já
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækja sápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Myndband
Svakom
Looking for a sex toy for yourself or a partner? We offer range of industry's most advanced sex toys for the ultimate pleasure. Find & buy a sex toy today!
















