Adonis
Adonis er tvöfaldur titrari frá Svakom og er með tvo mótora sem auðvelda þér að stjórna hvar örvunin á að vera sem mest. Hann er sérstaklega hannaður til þess að veita örvun inni í leggöngum og á sníp á sama tíma. Adonis er stífur svo að tækið gefur ekki eftir þegar því er þrýst inn í leggöng. Tækið hefur rifflaða áferð, bæði á þeim hluta sem leggst á snípinn og á þeim hluta sem fer inn í leggöng og veitir því auka örvun. Sá hluti tækisins sem leggst á snípinn veitir góðan þrýsting.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Titrarinn veitir góða fyllingu í leggöng og hefur þann eiginleika að geta hitnað upp í 38 gráður. Adonis hefur fimm kraftstillingar og átta taktstillingar sem gerir hann hentugan fyrir þá sem þurfa mikla örvun. Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í allt að 14 klukkustundir og tekur um 2,5 klukkustundir að fullhlaða. Með því fylgir hleðslusnúra sem stungið er í tækið að neðanverðu. Hleðslusnúran er með USB enda sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Ekki er ráðlagt að nota Adonis á meðan hann er í hleðslu. Tækið kemur í dökk bleiku og fjólubláu.
Stillingar:
Fjórir takkar eru á Adonis, ör sem vísar upp fyrir meiri kraft og ör sem vísar niður fyrir minni kraft. Ef tvísmellt er á efri takkann færðu upp mismunandi taktstillingar sem veita fjölbreytta örvun. Til þess að kveikja og slökkva á tækinu er miðju takkanum haldið inni. Efsti takkinn býður upp á þann valmöguleika að hita tækið. Honum er þá haldið inni í um það bil 2 sekúndur eða þar til takkinn fer að blikka rauðu ljósi og hitar tækið sig upp í 38 gráður á um það bil 60 sek. Hitinn eykur blóðflæði til næmra svæða og eykur þannig unað. Titringurinn í Adonis er 4. á Blush skalanum 1-5 Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Tækið er úr silíkoni og mælum við með því að nota eingöngu vatnssleipiefni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt það. Titrarinn er sturtuheldur og er ekki ráðlagt að setja hann í kaf eins og t.d. í bað. Tækið kemur i vönduðum umhverfisvænum pappaumbúðum og inniheldur: Adonis, flauel poka, hleðslusnúru, leiðbeiningar um vöruna og ábyrgðarskírteini.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 20 x 8,8, x 3,8 cm
- Þyngd: 190g
- Rafhlaða: 2200 mAh Lithium rafhlaða
- Hleðslutími: 2,5 klukkustundir
- Ending rafhlöðu: 14 klukkustundir
- Vatnshelt: Sturtuheldur (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin. Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Svakom
Looking for a sex toy for yourself or a partner? We offer range of industry's most advanced sex toys for the ultimate pleasure. Find & buy a sex toy today!





