Tammy
Tammy er fyrirferðarlítill parahringur frá Svakom sem hægt er að nota með eða án maka. Parahringurinn hefur 2 hringi, fyrir typpi annars vegar og pung hins vegar. Hringurinn auðveldar þeim sem eru með typpi að halda stinningu og getur veitt dýpri fullnægingu. Auðvelt er að koma hringnum utan um typpi þar sem hann teygist auðveldlega og er þá önnur hliðin ætluð til þess að leggjast að sníp og veita örvun. Einnig er hægt er að snúa hringnum á þann hátt að önnur hliðin leggst á punginn og veitir örvun þar.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í allt að eina klukkustund og er fullhlaðið eftir um eina klukkustund í hleðslu. Með Tammy fylgir hleðslusnúra sem stungið er í samband fyrir miðju á annari hlið tækisins. Hleðslusnúran er með USB enda sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Ekki er ráðlagt að nota tækið á meðan að það er í hleðslu. Það er einstaklega hljóðlátt og kemur í fjólubláum lit.
Stillingar:
Tammy er úr silíkoni og mælum við þess vegna með því að nota eingöngu vatnssleipiefni með hringnum þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hann. Á tækinu sjálfu er einn takki sem er notaður til að kveikja, slökkva og skipta um stillingar. Halda þarf takkanum inni til að kveikja og slökkva. Þegar ýtt er einu sinni á takkann skiptir hann um kraftstillingu en ef tvísmellt er á takkann skiptir hann um taktstillingu. Tammy hefur 5 kraftstillingar og 5 taktstillingar. Tækið er sturtu vatnshelt og má taka það með í sturtu.
Titringurinn í Tammy er 3 á Blush skalanum 1-5 Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Tækið kemur i vönduðum umhverfisvænum pappaumbúðum og inniheldur: Tammy, flauel poka, hleðslusnúru, leiðbeiningar um vöruna og ábyrgðarskírteini.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 80*42*51.6mm - minni hringurinn: 28mm - stærri hringurinn: 48mm
- Þyngd: 40g
- Rafhlaða: 100 mAh Lithium rafhlaða
- Hleðslutími: 1 klukkustund
- Ending rafhlöðu: 1 klukkustund
- Kraftstillingar: 5
- Taktstillingar: 5
- Vatnshelt: Sturtuheldur (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Myndband
Svakom
Looking for a sex toy for yourself or a partner? We offer range of industry's most advanced sex toys for the ultimate pleasure. Find & buy a sex toy today!



























