Sparitott Box
28.550 kr.
18.990 kr.Sparitott Boxið var sett saman í tilefni bóndadagsins en nú er það eitt allra vinsælasta boxið okkar. Sparitott boxið samanstendur af tveimur tegundum af typpahringjum, stroker múffu, sílikon sleipiefni og kælandi geli fyrir munn. Eins og nafnið gefur til kynna inniheldur boxið allt sem þarf fyrir einfaldara tott en frekari uppskrift og góða punkta má finna hér.
Heildar verðmæti er 28.550 kr
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Parahringurinn er mjúkur og sveigjanlegur og hugsaður til þess að nota með eða án maka. Hringurinn auðveldar þeim sem eru með typpi að halda stinningu og getur veitt dýpri fullnægingu. Hægt er að nota hringinn á fjölbreyttan hátt. Til dæmis er hægt að setja hann innst á typpið í kynlífi með maka þar sem hinn endinn á tækinu leggst á og örvar snípinn. Tækið er líka hægt að nota sem egg eða fingratitrara og örva snípinn á sama tíma og fingur fara inn í leggöng. Auðvelt er að koma hringnum utan um strap-on. Einnig er hægt er að snúa honum á þann hátt að annar endinn leggist á punginn og veitir örvun þar. Parahringurinn hentar vel fyrir gagnkynja og samkynja pör.
Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í 60 mínútur og tekur um 90 mínútur að fullhlaða það. Með hringnum fylgir hleðslusnúra sem er stungið í samband fyrir miðju á annari hlið hans. Hleðslusnúran er með USB enda sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Ekki er ráðlagt að nota tækið á meðan að það er í hleðslu.
Hringurinn er úr silíkoni og mælum við með því að nota eingöngu vatnssleipiefni með honum þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hann.
Stillingar: Á tækinu sjálfu er einn takki sem notaður er til að kveikja á titringnum. Eftir það er hægt að stjórna tækinu með fjarstýringu. Örvarnar upp og niður auka eða minnka kraftinn. Miðju takkinn er Reset takki sem setur tækið strax niður í lægstu stillingu.Tækið er sturtuhelt og má taka það með í sturtu en það þolir ekki að vera í kafi eins og í baði.
Titringurinn í parahringnum er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Core typpahringir frá Reset eru þrír misstórir typpahringir án titrings. Hringirnir eru úr mjúku, teygjanlegu sílikoni og henta því flestum typpum. Einstök hönnun gerir þér kleift að fjarlægja hringinn og setja hann á auðveldlega. Typpahringir geta hjálpað typpinu að halda stinningu og gert fullnæginguna dýpri og kröftugri. Stærðin á hringnum er valin eftir því hversu mikla þrengingu þú vilt hverju sinni.
3 í pakka
Handjob Stroker er opin, fjölnota múffa án titrings. Múffan er úr mjúku sílikoni sem gerir hana þægilega viðkomu og mjög teygjanlega. Innan í múffunni er mynstur sem veitir aukna örvun fyrir typpið og grípur vel utan um það. Hún er kreistanleg sem auðveldar þér að stjórna örvuninni, því þéttar sem þú heldur um hana því meiri verður örvunin.
Uberlube er hágæða sleipiefni sem inniheldur aðeins náttúruleg efni. Sleipiefnið er silíkonblandað sem gefur því silkimjúka áferð og góða endingu. Uberlube hefur aðeins fjögur innihaldsefni sem gerir það eitt af hreinustu sleipiefnunum á markaðnum. Það er lyktarlaust og inniheldur engin skaðleg efni eins og paraben eða ilmefni. Uberlube er frábær viðbót í kynlífið, munnmökin eða sjálfsfróunina og hefur ekki neikvæð áhrif á sýrustig eða bakteríuflóru í leggöngum eða endaþarmi. Uberlube má ekki nota með sílíkon tækjum.
Stærð: 50 ml
BLO Pleasure Gel BLŌ Oral Pleasure Gel er sérstaklega hannað fyrir munnmök og sameinar bragð, kælandi áhrif og langvarandi mýkt í einni formúlu.
Bragð: Jarðaberja
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is














