Nouveau Wand Massager
Kraftmikill nuddvöndur með breiðum haus frá Rosy Gold. Hann veitir djúpa örvun og er tilvalinn til þess að örva breitt svæði við sníp, geirvörtur eða önnur næm svæði á líkamanum. Silíkon umlykur nuddhausinn sem gerir hann mjúkan viðkomu og hentar tækið því einnig til að nudda háls og herðar.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Skaftið á nuddvendinum hentar líka í að leyfa öðrum að taka stjórnina og nudda þína næmustu staði. Mótorinn er staðsettur neðst í nuddhausnum og því er lítill titringur í skaftinu. Vöndurinn er úr umhverfisvænu silíkoni og mælum við eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með honum þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hann.
Stillingar:
Á tækinu eru 2 takkar. Efri takkanum er haldið inni í 3 sek til að kveikja og slökkva. Neðri takkinn er til að skipta um stillingar. Titringurinn í Nouveau Wand Massager er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran á með segli fyrir neðan takkana. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: ABS og silíkon
- Stærð:30x5,5cm
- Þyngd: 606gr
- Hleðslutími: 2 klukkustundir
- Ending rafhlöðu: 1 klukkustund
- Kraftstillingar: 10
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is




















