Nouveau Mini Curve Massager
Fallegur nuddvöndur frá Rosy Gold. Nuddvöndurinn er fyrirferðarlítill en kraftmikill. Hann hentar fullkomlega til að nudda snípinn, geirvörtur eða önnur næm svæði á líkamanum. Vöndurinn hefur sveigjanlegan nuddhaus og handfang með sveigju sem fellur vel að líkamanum. Tækið er kraftmikið þrátt fyrir stærð og hentar vel fyrir þá sem vilja hafa gott grip á tækjum. Handfangið auðveldar þér að stjórna vendinum eða leyfa öðrum að örva þín næmustu svæði. Nouveau Mini Curve hefur mjúka silíkonhettu sem hægt er að taka af.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Stillingar:
Á tækinu er einn takki sem haldið er inni í 2 sek til að kveikja og slökkva. Ef ýtt er einu sinni á takkann skiptir hann um stillingar. Titringurinn í Nouveau Mini Curve Massager er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: ABS
- Stærð: 13x3 cm
- Hleðslutími: 2 klukkustundir
- Ending rafhlöðu: 1 klukkustund
- Kraftstillingar: 10
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is







