Nouveau Curve Massager
Kraftmikill nuddvöndur með breiðum haus frá Rosy Gold. Hann er tilvalinn til þess að örva sníp, geirvörtur eða önnur næm svæði á líkamanum og veitir djúpa örvun. Nuddvöndurinn er minni í stærð en hefðbundnir nuddvendir. Silíkon umlykur nuddhausinn sem gerir hann einstaklega mjúkan og hentar því tækið einnig til að nudda háls og herðar. Handfangið gerir þér kleift að leyfa öðrum að taka stjórnina og nudda þína næmustu staði.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Vöndurinn hefur sveigjanlegan nuddhaus og handfang með sveigju sem fellur vel að líkamanum. Mótorinn er staðsettur neðst í nuddhausnum og því er lítill titringur í skaftinu. Tækið er úr silíkoni og mælum við með því að nota eingöngu vatnssleipiefni með því.
Stillingar:
Á tækinu eru 2 takkar. Efri takkanum er haldið inni í 3 sek til að kveikja og slökkva. Neðri takkinn er til að skipta um stillingar.
Titringurinn í Nouveau Curve Massager er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða vöndinn er hleðslu pinna stungið inn aftan á miðju tækinu. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb.
Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: ABS og silíkon
- Stærð: 21x4,2 cm
- Þyngd: 327 gr
- Hleðslutími: 2 klukkustundir
- Ending rafhlöðu: 1 klukkustund
- Kraftstillingar: 10
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is



















