Discover Your Lover Special Edition
Discover Your Lover Special Edition er fullkomið spil til þess að upplifa spennuþrungna stund með makanum þínum. Það gengur út á það að kasta teningi og draga spjald eftir því sem teningurinn segir til um. Spjöldin innihalda annað hvort persónulegar spurningar eða verkefni með kynferðislegu ívafi sem þarf að leysa. Spennan byggist hratt upp og verður enn erfiðara að einbeita sér í verkefnunum. Spilið eykur nánd á milli tveggja aðila ásamt því að gera kynlífið og forleikinn að æsandi leik.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Discover Your Lover Special Edition er ein af fjölmörgum útgáfum af Discover Your Lover spilunum. Þau hafa svipaða uppbyggingu en mismunandi verkefni með sama kynferðislega ívafinu sem þarf að leysa. Spilin hafa öll verkefni og spurningar en misjafnt er hvernig þau eru spiluð.
Discover Your Lover Special Edition hefur 192 spurningar og verkefni og hentar gagnkynja pörum. Útskýringar á ensku. Í nokkur ár hefur þetta spil verið á vinsældalistum um allan heim. Það er gefið út á sjö tungumálum og hefur verið selt í 300 þúsund eintökum. Spilið er mjög einfalt og fylgja góðar leiðbeiningar með.
Í upphafi setja báðir aðilar fram sína ósk, hvort sem það er ákveðin fantasía sem þeir vilja fá uppfyllta eða morgunverður í rúmið. Sigurvegarinn fær svo sína ósk uppfyllta. Skemmtilegt, spennandi og æsandi spil fyrir þig og makann.








