Vulva Lover 2
Vulva Lover 2 frá Satisfyer er sogtæki sem hannað er sérstaklega til þess að veita djúpa og kraftmikla örvun á snípinn. Tækið er samblanda af léttu sogi og titring. Tækið notar þrýstibylgjutækni til þess að örva snípinn og líkja eftir unaðslegum munnmökum. Lögun tækisins er til þess gerð að falla vel að líkamanum og passa vel í hendi svo auðvelt er að stýra tækinu á réttan stað og skipta um stillingar.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Stillingar:
Á tækinu eru 3 takkar. Haldið ON/OFF takkanum inni í 2 sek til þess að kveikja/slökkva á soginu. Takkarnir með bogamynstrinu eru notaðir til þess að auka og minnka kraftinn á soginu. Haldið takkanum með bylgjumystrinu inni í 2 sek til þess að kveikja á titraranum, sami takki er svo notaður til þess að auka kraftinn með því að ýta á hann einu sinni. Haldið ON/OFF takkanum inni í 4 sek til þess að para tækið við snjalltæki.
Titringurinn í Vulva Lover 2 er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon og ABS plast
- Stærð: 12 x 13 x 5 cm
- Þyngd: 128 gr
- Rafhlaða: Li-ion battery
- Hleðslutími: 1 klukkustund
- Ending rafhlöðu: 1,5 klukkustund
- Kraftstillingar: 10
- Sogstillingar: 11
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau. Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Tveggja ára ábyrgð er á öllum endurhlaðanlegum tækjum hjá Blush.is gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla svo sem rof á tengingu við takka eða mótor. Ábyrgðin nær ekki yfir raka skemmdir, högg skemmdir, rafhlöðu eða útlits skemmdir. Athugið að ekki má nota silíkon sleipiefni með silíkon vörum. Ef silíkon sleipiefni er notað með silíkon vörum dettur varan úr ábyrgð.
Satisfyer
Þar sem þýsk verkfræði mætir unaði.




























