Moxie+
Moxie+ er lítið og nett egg frá framleiðendum We-Vibe sem tilheyrir Womanizer fjölskyldunni. Moxie+ er því hágæða tæki sem einkennist af kröftugum og hljóðlátum titringi. Það bíður upp á fjölbreytta örvun þar sem að eggið kemur með segli sem hægt er að festa í hvaða nærbuxur sem er. Eggið helst vel á sínum stað og veitir kröftuga örvun á snípinn. Eggið kemur í svörtum lit.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Moxie kemur með fjarstýringu svo að hægt er að leyfa öðrum að taka stjórnina og upplifa skemmtilega stemningu þar sem annar aðilinn stjórnar örvuninni. Egginu er einnig hægt að stjórna með snjallforriti í síma. Tækið er tilvalið fyrir pör þar sem að annar eða báðir aðilar eru með sníp. Njóttu þess að hafa báðar hendur lausar og veittu hinum aðilanum alla þína athygli á meðan að Moxie sér um að veita þér djúpa örvun. Moxie er einstaklega mjúkt viðkomu og hefur einstaka lögun sem fellur vel að snípnum.
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Á tækinu er einn takki, honum er haldið inni í 2 sek til að kveikja og slökkva, ýtt er á takkann til að skipta um stillingar. Á fjarstýringunni eru 4 takkar til að stjórna kraftstillingum og taktstillingum.
Titringurinn í Moxie er 2 á Blush skalanum 1-5, fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Eggið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatn eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 92x35mm
- Þyngd: 105gr
- Hleðlsutími: 1,5 klst
- Ending rafhlöðu: 2 klst
- Kraftstillingar: 10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Hægt að stjórna úr hvaða fjarlægð sem er. (long distance)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is






