Pro
Stundum veita litlu hlutirnir í lífinu okkur mesta ánægju og á það svo sannarlega við um þetta fallega tæki.
Framleiðendur Womanizer leggja mikla áherslu á að vörurnar séu auðveldar í notkun og að þær falli vel í hendi. Það notar þrýstibylgjutækni sem veitir djúpa örvun á snípinn og líkir eftir léttu sogi. Upplifunin verður því líkust unaðslegum munnmökum.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Sogtilfinningin sem Womanizer veitir er frábrugðin annarsskonar örvun og mælum við sérstaklega með því fyrir alla sem eru með sníp að leyfa sér að upplifa þessa mögnuðu tilfinningu sem sogtæki geta veitt. Womanizer örvar snípinn óbeint en þó að sogtilfinningin sé létt er örvunin frekar djúp sem getur veitt dýpri og kraftmeiri fullnægingu en með öðrum tækjum. Womanizer vörurnar eru allar háklassa vörur sem hafa einfalda og fallega hönnun.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Stillingar:
Á tækinu eru þrír takkar. On/off takkanum er haldið inni í tvær sekúndur til þess að kveikja/slökkva á tækinu. Til þess að auka eða minka kraftinn er ýtt á +/- takkana.
Upplýsingar:
- Efni: ABS, silíkon
- Stærð: 16,1 cm
- Þyngd: 440 gr
- Hleðslutími: 120 mín
- Hleðsluending: 240 mín
- Kraftstillingar: 11
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
















