Love Birds Vary
Love Birds Vary frá Satisfyer, titrandi grindarbotnskúlur með ótal möguleika. Þær veita titring sem gerir hverja æfingu bæði árangursríka og skemmtilega og koma með tveimur aukaþyngdum. Kúlurnar eru með fjarstýringu en einnig er hægt að stjórna þeim í appi fyrir enn fleiri möguleika.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Kúlurnar eru úr mjúku, hágæða sílikoni og eru þær þægilegar í notkun. Þú getur valið úr þremur þyngdum, 29 gr, 35 gr og 43 gr. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana. Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Titringurinn í tækinu er 2 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Stillingar:
Einn takki er á kúlunum sem haldið er inni til þess að kveikja/slökkva á tækinu. Hægt er að þrýsta aftur á sama takka til þess að skipta um stillingar. Love Birds kúlurnar koma með fjarstýringu sem gerir þér kleift að stjórna þeim handfrjálst en einnig er hægt að tengja þær við app. Satisfyer appið er skemmtileg viðbót við tækið sem gefur þér möguleikann á að búa til þínar eigin stillingar og deila uplifun þinni með öðrum. Hægt er að hlaða niður Satisfyer connect appinu í App Store fyrir Iphone og Google Play fyrir Android.
Upplýsingar:
- Efni: ABS, Silíkon.
- Stærð: 3,3 x 3,3 x 22,2 cm
- Innsetningarlengd: 14 cm
- Þyngd: 212 gr
- Hleðslutími: 10 mín
- Ending rafhlöðu: allt að 60 mín
- Kraftstillingar: 12
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Sérstakir eiginleikar: Snögg hleðsla, auðvelt í notkun, mismunandi þyngdir, app & fjarstýring.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is
Satisfyer
Þar sem þýsk verkfræði mætir unaði.



























