Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Care+

32.990 kr.

Perifit Care+ er nýr og endurbættur grindarbotnsþjálfi frá Perifit. Tækið gerir grindarbotnsþjálfunina mun skemmtilegri og skilvirkari en áður. Grindarbotnsþjálfinn tengist við app í símanum þínum og í appinu getur þú spilað mismunandi leiki. Leikirnir bregðast við, af mikilli nákvæmni, þegar þú spennir eða slakar á grindarbotnsvöðvunum.

1 stk.

  • Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
  • Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Care+
Care+

Ekki gleyma með!

Agape Sleipiefni
120 ml

+ 3.690 kr.

120 ml
Forleikur

+ 2.990 kr.

MedIntim Vagiwell Dilator
Sett í stærð S

+ 19.990 kr.

Sett í stærð S

Vörulýsing

Leikirnir eru hannaðir af sérfræðingum á þessu sviði, í samráði við lækna, með það í huga að aðstoða fólk við það að þjálfa grindarbotninn á réttann hátt. Tækið skráir frammistöðu þína út frá fimm þáttum : Styrk, þreki, tíðni, losun og nákvæmni. Út frá þeim þáttum setur tækið upp æfingar, sérsniðnar að þér og þínum þörfum.

Perifit Care+ er ólíkur hinum hefðbundna Perifit þar sem hann er sveigjanlegur og aðlagar sig því að hverjum einstakling fyrir sig. Þar sem tækið er sveigjanlegt er hægt að nota það í hvaða stöðu sem er, hvort sem þú kýst að nota hann standandi, liggjandi eða jafnvel á æfingu. Einnig hefur verið gerð uppfærsla á skynjurum tækisins svo þeir eru enn nákvæmari en áður.

Hægt er að hlaða niður Perifit appinu hjá App store fyrir Iphone eða hjá Google Play fyrir Android. Appið er frítt og hentar fyrir tæki frá Apple sem eru iOS 13 eða nýrri og fyrir Android 6 eða nýrri.

Mælt er með því að nota tækið í um 30 mínútur á viku, hvort sem er 1x í 30 mín eða 5 mín á dag sex daga vikunnar. Tækið er búið rafhlöðu sem endist í 10 ár (miðað við 30 mín á viku).

Upplýsingar:

  • Efni: Ofnæmisprófað sílikon, laust við BPA, Phthalates og EA.
  • Stærð: 6,3 x 2,7 cm
  • 10 ára rafhlöðuending
  • Enginn titringur
  • Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
  • Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)

Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.

Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is