Wonderlove
Wonderlove býður upp á tvöfalda örvun fyrir g-blettinn og snípinn. Breiðari enda tækisins er komið fyrir í leggöngum þar sem það veitir fyllingu og titring á g-blettinn. Á sama tíma leggst nettari endinn við snípinn og örvar hann með kröftugum titring. Fjarstýring fylgir með sem auðveldar þér eða maka að skipta um stillingu eftir að tækinu hefur verið komið fyrir.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Stillingar:
Á tækinu er einn takki sem haldið er inni til þess að kveikja/slökkva á tækinu. Þegar kveikt er á tækinu logar ljós. Á fjarstýringunni eru 4 takkar. Haldið ON/OFF takkanum inni til þess að kveikja á fjarstýringunni. Þegar kveikt er á fjarstýringunni logar ljós. Ýtið 1x á þann takka sem við á til þess að skipta um stillingu. Ljósið á fjarstýringunni blikkar til að gefa til kynna að stillingin hafi breyst, einnig blikka ljósin í takt við taktstillingarnar. Þannig sér sá sem stýrir fjarstýringunni hvaða taktur og kraftur er á tækinu hverju sinni.
Titringurinn í tækinu er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Til að hlaða tækið er snúrunni komið fyrir í gati við hlið takkans. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Sílikon og ABS plast
- Stærð: 21,8 cm. Innsetningarlengd: 12 cm. Þvermál: 3,8 cm.
- Þyngd: 380 gr
- Hleðslutími: 120 mín
- Ending rafhlöðu: 1 klukkustund
- Stillingar: 5 í hvorum enda
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Blikkandi ljós þegar 10% af rafhlöðunni eru eftir.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is




















