Ion 2
Ion 2 frá Arcwave er næsta kynslóð af háklassa rúnkmúffum fyrir typpi. Tækið byggir á byltingarkenndri þrýstibylgjutækni (Pleasure Air), en í þessari uppfærðu útgáfu hefur verið bætt við fleiri möguleikum og þægindum sem gera upplifunina enn betri. Ion 2 er með dynamic autopilot sem breytir mynstrum og styrk sjálfkrafa fyrir óvænta og fjölbreytta örvun. Ion 2 örvar næmasta hluta kóngsins með púlsandi loftbylgjum, sem leiðir til dýpri og kröftugri fullnæginga.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Snertiskynjari er á tækinu sem gerir það að verkum að tækið fer ekki af stað fyrr en múffan nemur snertingu við typpi, sem gerir notkunina einstaklega hljóðláta. Ný hönnun er á múffuni með twist to open kerfi sem gerir það að verkum að einstaklega auðvelt er að þrífa hana. Með tækinu fylgir taska og hleðslusnúra.
Við mælum með því að nota vatnssleipiefni með Ion 2 þar sem silíkon sleipiefni gæti skemmt hana.
Stillingar:
Á tækinu eru 3 takkar: Plús, mínus (+ / -) og „autopilot“ takki. Til að kveikja á múffunni er plús takkanum haldið inni í um 5 sek. Þá kveikist á múffunni í Smart Silence stillingu, þannig fer hún ekki í gang fyrr en snertiskynjarinn nemur typpið. Plús og mínus takkarnir eru notaðir til að stjórna kraftinum.
Til að slökkva á tækinu er plús takkanum haldið inni í nokkrar sekúndur.
Upplýsingar:
- Efni: Clean tech silíkon
- Stærð: 15,3 x 5,1 x 8,3 cm
- Innra þvermál: 3,3 cm
- Hleðslutími: 120 min
- Ending rafhlöðu: 90 min
- Kraftstillingar: 8
- Vatnshelt: Sturtuheld (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Gott að eiga:
- Vatnsleipiefni þar sem að engin rakamyndun er í múffum
- Hreinsiefni fyrir kynlífstæki til að koma í veg fyrir bakteríumyndun
- Púður til þess að þurrka upp allan raka eftir að múffan hefur verið þvegin.
Þrif: Múffunni er snúið í sundur og hún skoluð með vatni og þrifin með mildri ilmefnalausri sápu eða sérstakri kynlífstækjasápu eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is


















