Flip Zero Vibration
Flip Zero Gravity EV er háklassa rúnkmúffa frá TENGA sem sameinar hina þekktu Flip Zero Gravity hönnun með öflugum titring. Útkoman er enn kraftmeiri og fjölbreyttari örvun en áður fyrr, þar sem bæði áferð og titringur vinna saman til að skapa djúpa og einstaka örvun. Tveir innbyggðir mótorar eru staðsettir efst og neðst í múffuni, þannig nær titringurinn að leiða alveg frá toppi til botns og gefur stöðuga og kraftmikla upplifun.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Flip Zero Gravity EV er mjúk og kreistanleg og því er auðvelt að stjórna þrengingunni með því að kreista múffuna. Þegar hún er kreist þrýstist loftið úr henni og myndar náttúrulegt sog sem líkir eftir unaðslegum munnmökum. Flip Zero hentar einstaklingum með typpi jafnt sem pörum þar sem annar eða báðir aðilar eru með typpi. Hún er einstaklega þægileg í notkun og passar vel í hendi. Fyrsta flokks silíkon, sem er einstaklega mjúkt viðkomu.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Hleðsludokka fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Titringurinn í tækinu er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Stillingar:
Til þess að kveikja/slökkva á tækinu er on/off takkanum haldið inni en hann er staðsettur efst á tækinu. Ýtt er á sama takka til þess að breyta um kraftstillingar.
Upplýsingar:
- Efni: TPE
- Stærð: 18.0 cm × 8.0 cm × 7.0 cm
- Innri mál: 150 mm x 50 mm
- Þyngd: 530 gr
- Hleðslutími: 90 mín
- Hleðsluending: Allt að 40 mín
- Kraftstillingar: 5
- Vatnshelt: Nei en má þrífa múffuna með vatni.
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Gott að eiga:
…Vatnsleipiefni þar sem að engin rakamyndun er í múffum
…Hreinsiefni fyrir kynlífstæki til að koma í veg fyrir bakteríumyndun
…Púður til þess að þurrka upp allan raka eftir að múffan hefur verið þvegin.
Þrif: Hægt er að opna múffuna svo einfalt er að þrífa hana. Múffan er skoluð að innan með vatni og þrifin með mildri ilmefnalausri sápu eða sérstakri kynlífstækjasápu eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is









