Discover Your Lover
Discover Your Lover er fullkomið spil til þess að upplifa spennuþrungna stund með makanum þínum. Spilið inniheldur stórt spilaborð, tening, peð og spjöld. Það gengur út á það að kasta teningi og leysa verkefni eða svara spurningu eftir því hvaða reit þú lendir á. Reitirnir innihalda verkefni með kynferðislegu ívafi sem þarf að leysa eða persónulegar spurningar sem auðveldar þér að uppgötva nýjar þrár maka þíns.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Spilaborðið hefur einnig nuddreiti og ef þú lendir á þeim býðst þér unaðslegt nudd eða strokur frá makanum þínum. Spennan byggist hratt upp og verður enn erfiðara að einbeita sér í verkefnunum. Spilið eykur nánd á milli tveggja aðila ásamt því að gera kynlífið og forleikinn að æsandi leik.
Discover Your Lover kemur í fjölmörgum útgáfum. Spilin hafa svipaða uppbyggingu en mismunandi verkefni með sama kynferðislega ívafinu sem þarf að leysa. Þau hafa öll verkefni og spurningar en misjafnt er hvernig þau eru spiluð. Útskýringar á ensku.
Spilið er mjög einfalt og fylgja góðar leiðbeiningar með sem útskýra hvernig skal leika leikinn. Í upphafi setja báðir aðilar fram sína ósk, hvort sem það er ákveðin fantasía sem þeir vilja fá uppfyllta eða morgunverður í rúmið. Sigurvegarinn fær svo sína ósk uppfyllta. Skemmtilegt, spennandi og æsandi spil fyrir þig og makann.
















