Hættir maður einhverntímann að leika sér?
Að „leika sér“ er hlutur sem við tengjum öll við barnæskuna. Þegar við vorum börn þá hvatti fullorðna fólkið okkur til að leika. Við elskuðum að láta ímyndunaraflið ráða ferðinni, skynja eitthvað nýtt, láta hjartað slá hraðar og auðvitað leika með uppáhalds leikfangið okkar.
Núna, orðnir fullorðnir einstaklingar höfum við flest hætt að leika okkur til að nota tímann í hluti sem við teljum að komi okkur nær markmiðum og muni bæta heilsu okkar og líðan. Það er staðreynd, að ef að barn fær ekki að leika sér, heldur einungis gera ákveðna hluti þá fer því að leiðast.
Vissir þú að rannsóknir sýna að leikur ætti ekki aðeins að vera fyrir börn? Ef þú gefur þér tíma til að detta í leik og notar ímyndunaraflið, þá færir það þér ekki aðeins gleði, heldur bætir andlega, líkamlega og tilfinningalega líðan þína og getu.
Í dag er Barbie og hjólaskautar kannski ekki eins heillandi og þegar við vorum börn, en það er til heill heimur af leikföngum sem eru sérstaklega hönnuð fyrir fullorðna. Ykkur grunar eflaust hvað ég á við,
já kynlífsleikföng.
Sjálfsfróun er hinn fullkomni leiktími fyrir fullorðna og kynlífsleikföng eru gerð til að hámarka unaðinn í leik.
Fyrsta skrefið til að fá sem mest út úr leiktímanum þínum er að finna lausan tíma og taka hann frá aðeins fyrir sjálfan þig. Í staðinn fyrir að hanga á netinu að skoða vefsíður, farðu þá frekar og finndu þér stað sem þú getur slakað á og leikið þér með þínu uppáhalds kynlífstæki. Þú munt ekki bara hafa það skemmtilegt, heldur uppskerðu betri kynferðislega og andlega heilsu.