Fyrsta kynlífstækið

Langar þig til að kaupa þitt fyrsta kynlífstæki en ekki enn tekið skrefið? Það er mjög algengt að mikla þetta fyrir sér enda gríðarlegt úrval tækja á markaðnum og oft erfitt að velja eða átta sig á hvaða tæki hentar. Kynlífstæki geta verið frábær viðbót hvort sem það er í sjálfsfróun eða í kynlífi með maka. Þau bjóða upp á ný tækifæri og nýja upplifun, geta gefið þér öðruvísi fullnægingar og hjálpað þér að læra enn betur á hvað það er sem þér finnst gott í kynlífi 🙏🏼


Á dögunum spurðum við fylgjendur okkar út í þeirra fyrsta kynlífstæki og fengum hundruði skemmtilegra svara. Áberandi mörg áttu egg sem fyrsta tæki eða titrara með snúru og fjarstýringu. Í dag er úrvalið hins vegar orðið töluvert fjölbreyttara og gæðin meiri svo úr nógu er að velja. Annað áhugavert sem fylgjendur bentu á sem fyrsta tæki voru m.a. banani, vegghanki, pringles dós og rafmagnstannbursti 😅 Þrátt fyrir góðar reddingar þá mælum við eindregið með að fjárfesta í alvöru tæki og upplifa unaðinn sem því fylgir!


Hér höfum við tekið saman stuttan lista af tækjum sem eru tilvalin sem fyrsta tækið!


Fyrir píkur


Desire G Spot - Desire er einstaklega mjúkur og sveigjanlegur titrari og er tilvalinn sem fyrsta tækið þar sem hægt er að nota titrarann til að örva bæði sníp og inn í leggöngum. Tækið er vatnshelt og má taka með í sturtu, bað eða heitan pott. 


Pro Traveler - Ef þig langar til að upplifa þá mögnuðu tilfinningu sem sogtæki geta veitt þá er Satisfyer Pro Traveler tilvalið sem fyrsta sogtækið. Tækið hefur mildan sogkraft og líkir eftir unaðslegum munnmökum. Þó að sogið sé létt veitir það kröftuga örvun. Við mælum með fyrir öll sem eru með sníp að prófa sogtæki!


Flirt Egg - Þú hefur eflaust heyrt að egg sé frábært sem fyrsta tæki. Flirt frá Reset er einstaklega hljóðlátt og fyrirferðarlítið svo það hentar mjög vel fyrir byrjendur. Eggið er hugsað til örvunar á snípinn og er fullkomið í sjálfsfróunina eða í kynlífi með maka.  


Fyrir typpi


Male Masturbator með gripi - Mjúk rúnkmúffa frá Perfect Fit sem er opin í báða enda. Múffan er teygjanleg og hefur þann eiginleika að aðlaga sig að hvaða stærð og lögun typpa sem er. Hún hefur handföng á hliðunum sem auðveldar notkun og veitir aukinn unað í forleik, sjálfsfróun eða munnmökum.


Sam Neo - Ef þú vilt prófa múffu með mótor þá er Sam Neo tilvalið sem fyrsta tækið. Múffan er nett með bæði titringi og sogi en mynstrið sem fer utan um typpið er sérstaklega hannað til þess að veita sem mesta örvun. Hægt er að tengja Sam við app í snjalltæki þar sem hægt er að stjórna vélinni úr hvaða fjarlægð sem er.


3 Piece Cock Ring Set - Þrír typpahringir án titrings sem koma í mismunandi stærðum. Hringina er auðveldlega hægt að teygja utan um typpi, þeir þrengja vel að typpinu og hægja á blóðflæðinu. Typpið þrútnar og auðveldar þeim sem eru með typpi að halda stinningu ásamt því að veita dýpri og kraftmeiri fullnægingu. 

Fyrir rass


Cheeky - Cheeky er einstaklega mjúkur og sveigjanlegur og er frábær ef þig langar að eignast þitt fyrsta tæki til örvunar í endaþarmi. Tækið hefur djúpan titring og getur gefið þér aukin unað í sjálfsfróun eða kynlífi. Cheeky má einnig nota til örvunar á sníp eða í leggöng. Með tækinu fylgir fjarstýring sem gerir það auðveldara að stjórna tækinu. 


Buttplug S-L Easy Toys - Stinnur sveigjanlegur sílíkon buttplug sem er keilulaga og auðvelt að koma fyrir. Tækið gefur góða fyllingu í endaþarm en það kemur án titrings. Plugginn kemur í þremur mismunandi stærðum svo það er tilvalið fyrir þau sem eru að prófa sig áfram með buttplug.


Vick Neo - Svakom - Frábært tæki sem veitir bæði örvun í endaþarm og á spöng á sama tíma. Hægt er að stjórna tækinu með appi í gegnum síma. Einnig er hægt að nota tækið til örvunar inn í leggöng og á snípinn á sama tíma.

Sjálfsfróun er yndisleg, kynlíf er gott og kynlífstæki eru skemmtileg. Svölum kynhvötinni, þekkjum okkur sjálf og höldum áfram að prófa nýja hluti. Njótum og höfum gaman að kynlífi 🔥