Yoni Power 1
Yoni Power 1 eru sérhannaðar kúlur til þess að þjálfa grindarbotnsvöðva. Þrjár kúlur koma saman í pakka og eru misþungar og misstórar. Hægt er að nota kúlurnar t.d. upp í rúmi, við dagleg störf, í sturtu eða þar sem þér hentar best. Kúlurnar eru vatnsheldar og eru úr hágæða silíkoni.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Um það bil 1 af hverjum 4 einstaklingum með leggöng upplifir einhvers konar þvagleka á lífsleiðinni, og getur því verið mjög gagnlegt að þjálfa grindarbotnsvöðvana reglulega. Sterkir grindarbotnsvöðvar styðja við leg, þvagblöðru, þvagrás og endaþarm, og geta komið í veg fyrir þvagleka, legsig og aðra fylgikvilla.
Með Yoni Power 1 kúlunum verður auðveldara að finna réttu spennuna í grindarbotnsvöðvunum og aðgreina hana frá spennu í kvið- eða rassvöðvum. Aðeins 15 mínútur á dag geta bætt stjórn, aukið næmni og gert fullnægingar dýpri og ákafari.
Kúlunum er komið fyrir inn í leggöngum og mælum við með því að nota vatnsuppleysanlegt sleipiefni með þeim. Léttasta kúlan er notuð sem fyrsta þrep. Gott að gefa sér tíma til þess að venjast æfingunum og átta sig á hvernig kúlan hjálpar okkur að ná réttri spennu í grindarbotninum. Mælt er með að skipta í næstu kúlu fyrir ofan eftir mánuð af reglulegum æfingum og það sama á við um þyngstu kúluna.
Upplýsingar:
- Efni: Sílikon
- Stærð: Small: Ø 20 x 30 x 125 mm. Medium: Ø 25 x 40 x 130 mm Large: Ø 30 x 45 x 135 mm
- Þyngd: Small: 22 gr. Medium: 46 gr. Large: 74 gr.
- Vatnshelt: Já
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau. Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Satisfyer
Þar sem þýsk verkfræði mætir unaði.







