Stella Vibrating Kegel Balls
Stella frá EasyToys eru grindabotnskúlur sem notaðar eru til þess að styrkja grindarbotnsvöðvana. Með reglulegri grindarbotnsþjálfun getur þú aukið vöðvastyrk, fengið meiri tilfinningu við samfarir, upplifað ákafari fullnægingar og bætt stjórn á bæði vöðvum og þvagblöðru. Titringurinn bætir jafnframt við aukinni örvun og gerir æfingarnar enn ánægjulegri. Hægt er að tengja tækið við app í símanum með bluetooth og má þannig stjórna titringnum með símanum.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Hægt er að tengja tækið við app í snjalltæki. Appið er auðvelt í notkun og hefur þann eiginleika að hægt er að stjórna tækinu úr hvaða fjarlægð sem. Þannig getur þú t.d. leyft maka þínum að taka stjórnina á örvuninni.
Hægt er að hlaða niður EasyConnect appinu í App Store fyrir Iphone og Google Play fyrir Android.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri.
Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Til þess að kveikja á Stellu skal halda inni on/off takkanum í um 1 sekúndu þar til tækið titrar stuttlega. Þá fer tækið í biðstöðu og er tilbúið til þess að tengja við appið. Tækið er með ferðalæsingu en til þess að kveikja á henni skal halda inni on/off takkanum í 2–3 sekúndur þar til tækið titrar tvisvar. Til staðfestingar má ýta einu sinni á on/off takkann, ljósið blikkar tvisvar þegar læsingin er virk.
Titringurinn í tækinu er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Upplýsingar:
- Efni: Silíkon
- Lengd: 18cm
- Þyngd: 51 gr
- Hleðslutími: 70 min
- Hleðsluending: 1 klst
- Hleðsla: endurhlaðanleg með USB snúru
- Taktstillingar: 9
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is
Tæknilegar upplýsingar
Tveggja ára ábyrgð er á öllum endurhlaðanlegum tækjum hjá Blush.is gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla svo sem rof á tengingu við takka eða mótor. Ábyrgðin nær ekki yfir raka skemmdir, högg skemmdir, rafhlöðu eða útlits skemmdir. Athugið að ekki má nota silíkon sleipiefni með silíkon vörum. Ef silíkon sleipiefni er notað með silíkon vörum dettur varan úr ábyrgð.




















