Verge 2
Verge 2 er vandaður typpahringur frá We-Vibe en hann auðveldar þeim sem eru með typpi að viðhalda stinningu og getur veitt dýpri fullnægingu. Hringurinn fer utan um typpi og pung þar sem hann situr þétt og veitir kraftmikla örvun á spöng. Hringinn er hægt að nota á fjölbreyttan hátt, hvort sem er í sjálfsfróun eða í kynlífi með maka. Tækinu er hægt að stjórna með appi í snjalltæki og þvi hægt að stjórna kraft- og taktstillingum hvar sem er í heiminum.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Hringnum er einnig hægt að koma fyrir innst á typpinu og láta endann liggja þannig að hann örvi snípinn í kynlífi með maka eða láta hringinn snúa niður og örva þannig punginnn.
Hægt er að stjórna tækinu hvar sem er í heiminum sem gerir tækið einstaklega hentugt fyrir einstaklinga í fjarsambandi. Hægt er að hlaða niður We-Connect appinu í App Store fyrir Iphone og Google Play fyrir Android.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Titringurinn í tækinu er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Stillingar
Til þess að kveikja/slökkva á tækinu er takkanum á hliðinni haldið inni. Ýtt er aftur á sama takka til þess að breyta um kraftstillingar.
Fyrir frekari leiðbeiningar um notkun ýtið hér.
Upplýsingar:
- Efni: Silíkon, ABS
- Stærð: 72 mm x 58 mm
- Hleðslutími: 90 mínútur
- Hleðsluending: Allt að 120 mínútur
- Kraftstillingar:10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is
Tveggja ára ábyrgð er á öllum endurhlaðanlegum tækjum hjá Blush.is gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla svo sem rof á tengingu við takka eða mótor. Ábyrgðin nær ekki yfir raka skemmdir, högg skemmdir, rafhlöðu eða útlits skemmdir. Athugið að ekki má nota silíkon sleipiefni með silíkon vörum. Ef silíkon sleipiefni er notað með silíkon vörum dettur varan úr ábyrgð.







