Uberlube 2GO Áfylling
Pakki sem inniheldur 2x 15ml glerflöskur fyrir Uberlube 2 Go álhylkið.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Pakkinn hentar sem áfylling á Uberlube 2Go álhylkið en einnig fyrir þá sem vilja alltaf eiga Uberlube við hendina. Hvort sem þú kýst að geyma eina flösku á heimilinu og eina í töskunni eða á heimili maka þíns er Uberlube áfyllingin frábær leið til þess að sjá til þess að flaskan gleymist aldrei heima.
Uberlube er hágæða sleipiefni sem inniheldur aðeins náttúruleg efni. Sleipiefnið er silíkonblandað sem gefur því silkimjúka áferð og góða endingu. Uberlube hefur aðeins fjögur innihaldsefni sem gerir það eitt af hreinustu sleipiefnunum á markaðnum. Það er lyktarlaust og inniheldur engin skaðleg efni eins og paraben eða ilmefni. Það er frábær viðbót í kynlífið, munnmökin eða sjálfsfróunina og hefur ekki neikvæð áhrif á sýrustig eða bakteríuflóru í leggöngum eða endaþarmi.
Sleipiefnið má fara á allan líkamann og er því tilvalið að nota það sem nuddolíu. Uberlube kemur í fallegu glasi með pumpu sem auðveldar notkun. Það klístrast ekki og veldur ekki ertingu á viðkvæmri húð. Uberlube er vegan, inniheldur aðeins efni úr plönturíkinu og er ekki prófað á dýrum. Sleipiefnið má nota með smokkum en hentar ekki með notkun á silíkon tækjum. Efnið hentar einnig vel til að nota í hár, svo litlu hárin standi minna út í loftið, og á milli læranna við t.d. hlaup til að koma í veg fyrir nuddsár.
Upplýsingar:
- Innihaldsefni: Dimethicone, Dimethiconol, Cyclomethicone, Tocopheryl Acetate (Vitamin E)
- Stærð:15ml
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
30 daga ábyrgð er á öllum sleipi- & hreinsiefnum hjá Blush.is gegn framvísun kvittunar.







