Rosonia Vagicaps
Rosonia VagiCaps er fljótvirk, staðbundin meðferð við óþægindum í leggöngum s.s. sviða, kláða, særindum og óeðlilegri útferð. Myndar varnarhimnu sem vinnur gegn bakteríu-, sveppa- og veirusýkingum. Stuðlar að náttúrulegri flóru í leggöngum. Græðandi við særindum eftir fæðingu.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Fyrir notkun skal þvo bæði hendur og kynfærasvæði og þurrka vel. Eitt hylki er sett hátt upp í leggöng þegar lagst er til svefns, meðferðin er endurtekin daglega í sjö daga eða þar til fullur bati hefur náðst. Sumar konur upplifa vægan sviða í upphafi meðferðar sem hverfur þegar líður á meðferðina. Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.
Virk innihaldsefni og virkni:
- TIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum títaníumdíoxíð míkrókristöllum. Það myndar örverudrepandi varnarhjúp yfir viðkomandi svæði sem veitir vörn gegn örverum og ertandi efnum. Hjúpurinn veitir kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja nýja sig.
- Aloevera róar slímhúðina og veitir raka.
- Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.
Upplýsingar:
- Innihaldsefni: TIAB (títaníum díoxíð míkrókristallar tengt silfurjónum), natríumhýalúrónat, Aloe Barbadensis (Aloe vera) útdráttur, caprylic/capric þríglýseríð, PEG-6 sterat (og) glýkólsterat (og) PEG-32 sterat, glýserýlsterat
- Stærð: x10 hylki
*Rannsóknir sýna að silfurjónir í TIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.007% míkrósilfurjónir.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is









