Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Pro+ G spot Generation 2

11.990 kr.

Satisfyer Pro+ G-Spot Generation 2 frá Satisfyer er fullkominn titrari fyrir tvöfalda örvun, þar sem öflugur titringur og létt sog vinna saman. Titrarinn er hannaður til að veita örvun á G-blettinn á meðan mjúki sílikonhausinn leggst þægilega að snípinum og veitir unaðslega örvun. Hann er mjúkur og sveigjanlegur og nær því vel að öllum þínum næmustu svæðum. Tækið er með tvo mótora sem hægt er að stjórna í sitthvoru lagi. Þannig getur þú stillt örvunina nákvæmlega eftir þínum óskum og notið titrings og sogs á sama tíma.


1 stk.

  • Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
  • Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Pro+ G spot Generation 2
Pro+ G spot Generation 2
Pro+ G spot Generation 2

Ekki gleyma með!

Waterbased Sleipiefni
150ml

+ 1.990 kr.

150ml
Hreinsifroða

+ 2.290 kr.

Stimulating CBD Oil

+ 9.990 kr.

Vörulýsing

Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.

Það fylgir ekki hleðslusnúra með tækinu en það er hlaðið með hefðbundinni USB-C snúru. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.

Stillingar: Tækið er með tvo mótora, annar stjórnar soginu og hinn titringnum. Því er stjórnað með 3 tökkum. Til að stjórna soginu er notað plús og mínus (+/-). Plúsnum er haldið inni í 2 sek til að kveikja og slökkva og hækka kraftinn, mínusinn er notaður til að minnka kraftinn. Neðsti takkinn sem er eins og bylgja er notaður til að stjórna titringnum, honum er haldið inni í 2 sek til að kveikja og slökkva. Titringurinn í Satisfyer Pro+ G-Spot Generation 2 er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.

Upplýsingar:

  1. Efni: Umhverfisvænt silíkon
  2. Stærð: 220,5 × 43,3 × 72,9 mm
  3. Þyngd: 200 gr
  4. Hleðslutími: 1 klukkustund
  5. Ending rafhlöðu: Allt að 1,5 klukkustund
  6. Kraftstillingar: 12
  7. Sogstillingar: 11
  8. Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
  9. Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)

Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.

Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is

Tveggja ára ábyrgð er á öllum endurhlaðanlegum tækjum hjá Blush.is gegn framvísun kvittunar. Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla svo sem rof á tengingu við takka eða mótor. Ábyrgðin nær ekki yfir raka skemmdir, högg skemmdir, rafhlöðu eða útlits skemmdir. Athugið að ekki má nota silíkon sleipiefni með silíkon vörum. Ef silíkon sleipiefni er notað með silíkon vörum dettur varan úr ábyrgð.

Tæknileg atriði

Satisfyer

Þar sem þýsk verkfræði mætir unaði.