Mirai
Mirai er fallegur og vandaður titrari með tveimur endum. Báðir endar hafa titring sem kallaður er Pulse-Wave. Innan í endanum er lítil blaðka sem hreyfist taktfast upp og niður og veitir þannig einstaka upplifun. Hetta fylgir með sem hægt er að setja á stærri endann fyrir ólíka örvun. Titrarinn er sveigjanlegur svo hægt er að örva bæði innan í leggöngum og sníp samtímis.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Á tækinu eru 3 takkar. ON/OFF takkanum er haldið inni til þess að kveikja og slökkva á tækinu. Takkarnir sitthvoru megin við ON/OFF takkann stjórna hvorum endanum fyrir sig. Hægt er að skipta um kraft eða takt stillingar með því að ýta stutt á annan hvorn takkann. Fx takkinn er climax mode takki, þegar honum er haldið inni í 3 sek fara allir þrír mótorar tækisins í kröftugustu stillingu.
Titringurinn í Mirai er 5 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Silíkon, ABS
- Þyngd: 179 gr
- Þvermál: 3,3 cm
- Innsetningarlengd: 14,8 cm
- Hleðslutími: 90 mín.
- Hleðsluending: 55 mín
- Stillingar: 10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is






