Miki
Miki er hljóðlátt en kraftmikið tæki sem býður upp á tvöfalda örvun. Öðrum enda tækisins er komið fyrir inn í leggöngum þar sem hann örvar g-blettinn. Innan í endanum er lítil blaðka sem hreyfist taktfast upp og niður og veitir þannig einstaka upplifun. Minni endi tækisins færist fram og aftur með titrandi hreyfingum og örvar snípinn. Tækið hefur tvo mótora svo hægt er að stjórna titring og púls í sitthvoru lagi.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Á tækinu eru 4 takkar. Haldið ON/OFF takkanum inni í 3 sek til þess að kveikja/slökkva á tækinu. Takki númer 1 stjórnar titringnum í legganga hlutanum. Ýtið einu sinni á takkann til þess að kveikja á púls titringnum, haldið inni í 3 sek til þess að slökkva á honum, þrýstið einu sinni á takkann til þess að skipta um kraftstillingu. Takki númer 2 stjórnar hreyfingum í minni endanum. Ýtið einu sinni á takkann til þess að kveikja á hreyfingunum, haldið inni í 3 sek til þess að slökkva á honum, þrýstið einu sinni á takkann til þess að skipta um kraftstillingu. Fx takkinn er climax mode takki, þegar honum er haldið inni í 3 sek fara allir þrír mótorar tækisins í kröftugustu stillingu.
Titringurinn í Miki er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Sílikon og ABS plast
- Stærð: 17 x 7,4 cm. Innsetningarlengd: 12 cm.
- Þyngd: 168 gr
- Hleðslutími: 2 klst
- Ending rafhlöðu: 40 mín
- Kraftstillingar: 10 per. mótor
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is





















