Dalvegi 32: Opnar 12:00 á morgun · Glerártorgi Akureyri: Opnar 12:00 á morgun

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Litla bókin um blæðingar

12.990 kr.

Litla bókin um blæðingar er hugsuð sem undirbúningur fyrir það að byrja á blæðingum og fyrir þessi fyrstu ár á blæðingum. Bókin er yfirgripsmikil og fer vel yfir ólíkar túrvörur, hvernig þær virka, kosti og galla; algengar spurningar; tíðahringinn; tíðaverki; hvernig megi leita sér hjálpar; algengar mýtur um tíðir í sögulegu og alþjóðlegu samhengi. Bókin tekur tillit til allra kynja, horfir til umhverfissjónarmiða og fagnar fjölbreytileika.

1 stk.

  • Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
  • Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Litla bókin um blæðingar
Litla bókin um blæðingar

Ekki gleyma með!

Fun Cup A&B

+ 3.990 kr.

Vörulýsing

Úff, að byrja á blæðingum! Að bíða eftir því að byrja á blæðingum! Að vera á blæðingum! Oh, bara þetta blæðingamál allt saman! Ég man alveg hvernig mér leið. Ég var svo stressuð og hrædd en líka svo spennt og forvitin. Mig langaði að vita allt en ég hafði engan að spyrja. Þess vegna erum við hér! Ég vil að þú fáir svör við öllum heimsins spurningum um blæðingar. Svo vertu velkomin, elsku TÚRVERA, í túrbók drauma minna, bókina sem ég hefði svo óskað að væri til þegar ég var barn og unglingur.


Bókin skiptist í sex kafla sem fjalla um jafnmörg málefni. Í hverjum kafla ræðum við algengar mýtur, ég deili með ykkur reynslusögum frá túrverum, veiti hagnýt ráð og svara spurningum um blæðingar sem ég hef fengið í kynfræðslu um allt land. Blæðingar eru ekkert til að óttast eða kvíða fyrir. Og alls ekkert til að skammast sín fyrir. Þær bara eru það sem þær eru, hvorki meira né minna.


-Sigga Dögg, kynfræðingur