Halo Orbit Cockring
Halo Orbit er kraftmikill hringur frá Hueman. Hringurinn er með tvöföldum mótor sem örvar typpi, pung og endaþarm í einni samfelldri upplifun. Þegar tækinu hefur verið komið fyrir liggur annar mótorinn undir pungnum og eggið fer inn í endaþarm. Með tækinu kemur fjarstýring svo auðvelt er að skipta um stillingu eftir að tækinu hefur verið komið fyrir.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Typpinu er komið fyrir í gegnum efri hringinn og pungnum í neðri hringinn. Pungurinn liggur þá þæginlega á öðrum mótornum. Þegar búið er að koma hringnum þæginlega fyrir er egginu komið fyrir í endaþarmi. Hægt er að fara öfugt í hringinn og nota hann þannig sem paratæki þar sem sveigjanlega eggið getur þá farið í leggöng eða endaþarm mótleikara.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Titringurinn í tækinu er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Stillingar:
Til þess að kveikja/slökkva á tækinu er on/off takkanum haldið inni í 2 sekúndur. Þegar búið er að kveikja á tækinu er hægt að skipta um stillingar með því að ýta aftur á sama takka á tækinu. Til þess að nota fjarstýringuna þarf fyrst að kveikja á tækinu sjálfu síðan er hægt að kveikja á fjarstýringunni. Upp og niður takkarnir á fjarstýringunni stjórna takftstillingunum á meðan hliðar takkarnir stjórna kraftinum.
Upplýsingar:
- Efni: Silíkon, ABS
- Stærð: 244 x 46 x 98 mm
- Hleðslutími: 65 mín
- Hleðsluending: Allt að 45 min
- Kraftstillingar: 5
- Taktstillingar: 10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is




















