Chaiamo
Chaiamo er kraftmikill og fallegur titrari frá Rocks Off. Hann er einn sá kraftmesti á markaðnum. Chaiamo hefur djúpan titring sem veitir mikla og kraftmikla örvun á sníp eða í leggöngum. Hann hefur þann eiginleika að grófi titringurinn helst í öllum stillingum og missir tækið aldrei djúpa kraftmikla titringinn eftir því sem hækkað er í kraftstillingunum. Titringurinn i tækinu er ekki ólíkur öflugum nuddvendi en Chaiamo er þrátt fyrir það nettur og fyrirferðarlítill, ólíkt nuddvöndum sem yfirleitt eru fyrirferðarmeiri.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Tækið er hægt að nota til að örva snípinn hvort sem að þú kýst að nota endann til að örva minna svæði í einu eða að leggja hliðina upp að snípnum og örva breiðara svæði. Chaiamo er stífur titrari og gefur ekki eftir þegar að honum er þrýst inn í leggöng. Hann hentar fullkomlega í sjálfsfróunina eða í kynlífið þar sem annar eða báðir aðilar eru með leggöng.
Stillingar:
Einn takki er á tækinu sem haldið er inni í 2 sek til að kveikja og slökkva. Þrýst er á takkann til að skipta um stillingar.
Titringurinn í Chaiamo er 5 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir með.
Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 15x3,1x3,1cm
- Þyngd: 120gr
- Hleðslutími: 1 klukkustund
- Ending rafhlöðu: 1,5 klukkustund
- Kraftstillingar: 10
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is








