Ai
Mjúkur og ólarlaus sílikon strap-on með kröftugum titring. Tækið veitir tvöfalda örvun fyrir þann sem beitir því. Styttri endanum er komið fyrir inni í leggögnum þar sem hann veitir góða fyllingu ásamt titring, á sama tíma og flati hlutinn örvar snípinn með púlserandi tunguhreyfingum. Stutti endinn er sveigjanlegur svo auðvelt er að koma tækinu fyrir eins og hentar best. Lengri endinn veitir góða fyllingu og titring fyrir hinn aðilann, hvort sem er í leggöng eða í endaþarm. Strap-onið er með þrjá mótora sem er stjórnað hverjum fyrir sig.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Ai er umlukið hágæða sílikoni og er einstaklega mjúkt viðkomu. Við mælum því eingöngu með þvi að nota vatnssleipiefni með tækinu þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt það.
Stillingar:
Á tækinu eru 5 takkar. Haldið ON/OFF takkanum inni í 3 sek til þess að kveikja/slökkva á tækinu. Takki númer 1 stjórnar titringnum og púlserandi tunguhreyfingum sem örvar snípinn. Ýtið einu sinni á takkann til þess að kveikja á titringnum, haldið inn í 3 sek til þess að slökkva á titringnum, þrýstið einu sinni á takkann til þess að skipta um kraftstillingu. Takki númer 2 stjórnar titringnum inní leggöng. Ýtið einu sinni á takkann til þess að kveikja á titringnum, haldið inn í 3 sek til þess að slökkva á titringnum, þrýstið einu sinni á takkann til þess að skipta um kraftstillingu. Takki númer 3 stjórnar titringnum í stærri endanum. Ýtið einu sinni á takkann til þess að kveikja á titringnum, haldið inn í 3 sek til þess að slökkva á titringnum, þrýstið einu sinni á takkann til þess að skipta um kraftstillingu. Fx takkinn er climax mode takki, þegar honum er haldið inni í 3 sek fara allir þrír mótorar tækisins í kröftugustu stillingu.
Titringurinn í Ai er 5 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Sílikon og ABS plast
- Stærð: 31,50 x 10,80 x 7,80 cm, Innsetningarlengd: 14,5 cm, Þvermál: 3,6 cm
- Þyngd: 294 gr
- Hleðslutími: 140 mín
- Ending rafhlöðu: 45 mín
- Kraftstilingar: 10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is







