Men Vibration
Men Vibration frá Satisfyer er nett múffa sem hugsuð er til örvunar á kónginn, næmasta hluta typpisins. Múffan heldur vel við typpið á meðan djúpur titringur leiðir um typpið og veitir kröftuga örvun. Tækið hentar einstaklega vel í forleik með maka eða sem aukin örvun í sjálfsfróun.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Hægt er að stjórna tækinu með Satisfyer appinu sem býður upp á enn fleiri möguleika.
Satisfyer appið er skemmtileg viðbót við tækið sem gefur þér möguleikann á að búa til þínar eigin stillingar og deila uplifun þinni með öðrum. Hægt er að hlaða niður Satisfyer connect appinu í App Store fyrir Iphone og Google Play fyrir Android.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Titringurinn í tækinu er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Stillingar:
Til þess að kveikja/slökkva á tækinu er efsta takkanum haldið inni. Til þess að auka kraftinn er ýtt aftur á sama takka og til þess að minka hann er ýtt á takkann þar fyrir neðan.
Upplýsingar:
- Efni:Silíkon & ABS
- Stærð: 175 x 67 mm
- Innsetningarlengd: 111 mm
- Þyngd: 339,5 gr
- Hleðslutími: 5 klst
- Hleðsluending: Allt að 1 klst
- Kraftstillingar: 14
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Sérstakir eiginleikar: App stýring, kraftmikill titringur & hentar vel hvort sem er í einleik eða í kynlífi með maka.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is
Satisfyer
Þar sem þýsk verkfræði mætir unaði.







